top of page

Nói Björgvinsson
Nói Björgvinsson er 15 ára tónlistarmaður sem lifir fyrir tónlistina og tónlistarheiminn.
Hann elskar að koma fram og spila fyrir aðra og er alltaf að vinna í nýjum lögum og vinnur hart í að verða betri og betri.

Upphafið
Nói byrjaði að læra á gítar 7 ára og uppgötvaði mjög hratt að hann gat líka sungið. Upphaflega söng hann og spilaði fyrir fjölskyldumeðlimi en byrjaði svo að spila á götunni aðeins 12 ára gamall. Hann hefur enn gaman að því, enda hjálpaði það honum að koma fram á sviði og inn í tónlistarheiminn sjálfan. Þetta var upphafið að tónlistarferli hans.
Í Dag
Nói er ennþá að spila á götunni af og til, en leggur þó meiri áherslu á að semja sín eigin lög og lagatexta ásamt því að vinna með öðrum tónlistarmönnum.
Hann hefur gefið út mörg lög er alltaf með ný lög og verkefni í farteskinu . Nói leggur mikla áherslu að halda áfram að læra nýja hluti og verða betri með hverjum deginum í tónlist.

bottom of page